Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. febrúar 2023 17:00
Aksentije Milisic
Sjáðu markið: Rosalegur stökkkraftur hjá hinum sjóðheita Osimhen
Mynd: Getty Images

Victor Osimhen, sóknarmaður Napoli, er einn heitasti leikmaðurinn í Evrópu um þessar mundir en hann hefur nú skorað 16 mörk í 17 deildarleikjum fyrir topplið Napoli í Serie A.


Hann setti tvennu í dag í góðum 0-3 útisigri á Spezia og er Napoli nú með sextán stiga forystu á toppi deildarinnar.

Fyrra markið skoraði Osimhen með skalla en hann fór illa með Bartlomiej Dragowski, markvörð Spezia, í loftinu og skallaði boltann yfir marklínuna.

Osimhen hefur skorað nokkur frábær mörk í vetur og er hann langt því frá að vera hættur. Hann hefur verið orðaður við hin ýmsu stórlið en Chelsea og Manchester United eru sögð vera á eftir kappanum.

Sjáðu magnaðan stökkkraft hjá Osimhen hérna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner