Cristiano Ronaldo er áfram í verkfalli hjá Al Nassr og mun ekki spila með liðinu í toppslag gegn Al Ittihad á morgun en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Ronaldo var ekki með í síðustu umferð en hann fór í verkfall vegna óánægju með hvernig PIF (ríkissjóður Sádi-Arabíu), sem á Al Nassr, Al Hilal, Al Ittihad og Al Ahli.
Telur hann PIF vera að gera upp á milli félaga og að Al Nassr sé aftast í röðinni þegar það kemur að styrkingum.
Hann spilaði því ekki í síðustu umferð þrátt fyrir að vera heill heilsu og kom þetta nokkrum félagaskiptum í uppnám þar á meðal Karim Benzema til Al Hilal en sádi-arabíska deildin heimilaði þau skipti samt sem áður.
Ronaldo er byrjaður að æfa með Al Nassr, en mun ekki spila gegn Al Ittihad á morgun. Romano segir hann ekki vera að glíma við meiðsli og það séu engin vandamál á milli hans, stjórnarinnar eða þjálfarans.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir deildina enda er Ronaldo lang stærsta stjarnan sem spilað hefur í Sádi-Arabíu.
???? BREAKING: Cristiano Ronaldo remains OUT for Al Nassr next game vs Al Ittihad on Friday.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 5, 2026
As revealed here on Monday; no issues with Al Nassr staff or management, no injury, no fitness problems.
Upset for PIF management with some of SPL clubs.
????? https://t.co/oDkAVFsxwu pic.twitter.com/JMbuB7OHkO
Athugasemdir


