Fotbolti.net
25.10.26 - 21:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ótrúleg tölfræði Mbappe gegn Barcelona

Ótrúleg tölfræði Mbappe gegn Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid er marki yfir gegn Barcelona í spænsku deildinni en það er um hálftími eftir þegar þetta er skrifað.

Kylian Mbappe skoraði markið undir lok fyrri hálfleiks.
Það kom fyrirgjöf og Gerard Martin hreinsaði boltann í Mbappe og þaðan fór hann í netið.

Mbappe er duglegur við að skora gegn Barcelona en hann hefur skorað 13 mörk í 11 leikjum gegn liðinu. Ef Real vinnur verður aðeins þriggja stiga munur á liðunum. Barcelona er á toppnum en Real í 3. sæti.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.