Fotbolti.net
05.03.26 - 22:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Tottenham í bullandi vandræðum

England: Tottenham í bullandi vandræðum
Canon

Mynd: EPA

Tottenham 1 - 3 Crystal Palace
1-0 Dominic Solanke ('34 )
1-1 Ismaila Sarr ('40 , víti)
1-2 Ismaila Sarr ('45 )
1-3 Jorgen Strand Larsen ('45 )
Rautt spjald: Micky van de Ven, Tottenham ('38)
Tottenham er í gríðarlega erfiðum málum eftir tap gegn Crystal Palace á heimavelli í kvöld.

Crystal Palace varð fyrst til að koma boltanum í netið þegar Ismaila Sarr skaut og boltinn fór af Pedro Porro og sveif yfir Guglielmo Vicario og í netið. Markið var hins vegar dæmt af þar seem Sarr var dæmdur rangstæður en það munaði litlu.

Fimm mínútum síðar náði Tottenham forystunni þegar Dominic Solanke skoraði eftir fyrirgjöf frá Archie Gray. Adam var ekki lengi í paradís því aðeins fjórum mínútum eftir markið fékk Micky van de Ven rautt spjald fyrir að rífa Sarr niður í teignum og vítaspyrna dæmd sem Sarr skoraði úr og jafnaði metin.

Crystal Palace skoraði síðan tvö mörk í uppbótatíma fyrri hálfleiks og fór með tveggja marka forystu inn í hálfleik. Margir stuðningsmenn Tottenham fengu nóg og foru heim í hálfleik.

Tottenham var nálægt því að koma sér inn í leikinn strax í upphafi seinni hálfleiks en Dean Henderson varði skalla frá Kevin Danso vel. Hvorugu liðinu tókst að bæta við mörkum í seinni hálfleik og Crystal Palace fór með sigur af hólmi.

Tottenham hefur tapað öllum þremur leikjum sínum undir stjórn Igor Tudor og situr í 16. sæti með 29 stig, aðeins stigi frá fallsæti. Crystal Palace er í 13. sæti með 38 stig.
Ismaila Sarr skorar úr vítinu

Ismaila Sarr skorar úr vítinu

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.