Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. maí 2021 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pochettino: Verðum að trúa leikmönnum og rannsaka málið
Mynd: EPA
„Ég heyrði ekki neitt frá hliðarlínunni þar sem ég stóð," sagði Mauricio Pochettino, stjóri PSG, eftir tapið gegn Manchester City í Meistaradeildinni í gær.

Pochettino tjáði sig um ummæli leikmanna sinna, þeirra Ander Herrera og Marco Verratti, sem sögðu að dómari leiksins, Bjorn Kuipers, hafi sagt leikmönnum PSG að fara til fjandans á meðan leik stóð.

Sjá einnig:
Leikmenn PSG: Dómarinn sagði okkur að fara til fjandans

„Við verðum að trúa leikmönnunum. Ef það er eitthvað gerðist þá þarf að rannsaka það. Þetta er alls ekki afsökun fyrir tapinu og mikilvægast og sorglegast að við erum dottnir út."

„En núna getur UEFA kannski skoðað þetta mál,"
sagði Pochettino.
Athugasemdir
banner
banner
banner