Fotbolti.net
04.07.26 - 01:29
Elvar Geir Magnússon

Grænhöfðaeyjar töpuðu en unnu samt - „Eins og Rocky bíómynd“

Grænhöfðaeyjar stóðu sig framúrskarandi vel.

Grænhöfðaeyjar stóðu sig framúrskarandi vel.

Canon

Mynd: EPA

Grænhöfðaeyjar féllu úr leik á HM eftir stórbrotinn framlengdan leik gegn Argentínu þar sem úrslitin réðust í lokin. Heimsmeistararnir unnu á endanum 3-2 sigur.

Grænhöfðaeyjar, sem eru í 64. sæti á heimslista FIFA, komu sér heldur betur á kortið á mótinu og fönguðu hug og hjörtu fótboltaunnenda með frábærri frammistöðu, geggjaðri liðsheild og leikgleði.
HM: Hetjuleg frammistaða Grænhöfðaeyja gegn heimsmeisturunum
TENGT EFNI

HM: Hetjuleg frammistaða Grænhöfðaeyja gegn heimsmeisturunum

„Þetta var eins og Rocky bíómynd. Grænhöfðaeyjar töpuðu en unnu samt. Leikmenn sýndu hugrekki, samheldni og óþrjótandi trú á sjálfum sér og hvað þeir gætu afrekað," segir James McFadden, sparkspekingur BBC.

„Argentína þurfti heldur betur að hafa fyrir sigrinum í kvöld og sýndi gæði sín. Saga kvöldsins eru þó klárlega Grænhöfðaeyjar. Saga mótsins eru Grænhöfðaeyjar."

Fótboltalýsandinn Ally McCoist heillaðist einnig af Grænhöfðaeyjum.

„Algjörlega stórkostlegur fótboltaleikur. Það býr svo miklu meira í þessu liði Grænhöfðaeyja en bara liðsandinn. Þeir hafa heldur betur skemmt okkur á þessu heimsmeistaramóti," segir McCoist.

Markvörðurinn Vozinha hefur orðið að stjörnu á mótinu en hann er 40 ára gamall og er án félags eftir að hafa yfirgefið Chaves í portúgölsku B-deildinni.

„Vozinha er að fara að fá gott félag eftir þetta. Allt sem hann gerir er af svo mikilli yfirvegun og öryggi. Hvar hefur hann verið? Við hefðum átt að kynnast honum fyrr," sagði Gary Neville á ITV.
Bubista, þjálfari Grænhöfðaeyja, eftir að liðið féll úr leik þrátt fyrir hetjulega framgöngu hjá heimsmeisturunum.

Bubista, þjálfari Grænhöfðaeyja, eftir að liðið féll úr leik þrátt fyrir hetjulega framgöngu hjá heimsmeisturunum.

Canon

Mynd: EPA

Vozinha sló rækilega í gegn.

Vozinha sló rækilega í gegn.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.