Bilic gæti tekið aftur við króatíska landsliðinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Slaven Bilic, fyrrum stjóri West Ham United, er líklega að taka aftur við króatíska landsliðinu en þetta kemur fram í Sportske Novosti.
Króatía datt úr leik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins eftir tap gegn Portúgal.
Zlatko Dalic hefur gert frábæra hluti með króatíska landsliðið síðan hann tók við árið 2017.
Hann kom liðinu í úrslitaleik HM árið 2018, þar sem Króatar töpuðu fyrir Frökkum. Það er besti árangur í sögu Króatíu, en liðið datt síðan út í 16-liða úrslitum Evrópumótsins þremur árum síðar.
Á síðasta HM komst Króatía í undanúrslit, en mikil breyting hefur orðið á liðinu síðustu ár. Nú er talið að Dalic, sem er samningslaus á næstu dögum, hafi samþykkt að taka við liði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Slaven Bilic, sem þjálfaði króatíska landsliðið frá 2006 til 2012, er talinn líklegastur til að taka við starfinu. Ivica Olic hefur einnig verið orðaður við stöðuna.
Bilic stýrði West Ham frá 2015 til 2017, en hefur einnig verið við stjórnvölinn hjá WBA, Watford, Al Ittihad og fleiri félögum. Hann stýrði síðast Al Fateh í Sádi-Arabíu.