Fotbolti.net
04.07.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aron Birkir: Þetta var skemmtilegt fyrir Gedda okkar

Aron Birkir fagnar markinu

Aron Birkir fagnar markinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór gerði 3-3 jafntefli gegn KR í ótrúlegum leik í Bestu deildinni á dögunum.

Þórsliðið spilaði í sérstökum treyjum sem stuðningsmenn félagsins hönnuðu og seldu til styrktar Gests Arasonar sem greindist með bráðahvítblæði í maí.
Þórsarar spila í sérstökum treyjum - Söfnuðu sex milljónum fyrir Gedda
TENGT EFNI

Þórsarar spila í sérstökum treyjum - Söfnuðu sex milljónum fyrir Gedda

Gestur fékk afhendar sex milljónir króna sem söfnuðust með sölu á treyjunni.

Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, gerði sér lítið fyrir og skoraði í leiknum. Hann ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn og var spurður út í treyjurnar.

„Geðveikt. Illa flottar og fyrir Gedda okkar. Hann er í erfiðri baráttu og er að tækla hana eins og kóngur og öll hans fjölskylda, þau eru illa frábær. Þetta var skemmtilegt fyrir okkar mann, Gedda," sagði Aron Birkir.

Aron markvörður og markaskorari: Skrítin tilfinning

Aron Birkir: Þetta var skemmtilegt fyrir Gedda okkar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Aron Birkir: Þetta var skemmtilegt fyrir Gedda okkar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.