
„Klúbburinn ákveður það að selja hann á þessum tímapunkti," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkur, þegar hann var spurður út í Amin Cosic í gær.
Amin var á dögunum seldur frá Njarðvík í KR. Hann fer yfir Í Vesturbæjarstórveldið þegar félagaskiptaglugginn opnar í næsta mánuði.
Amin var á dögunum seldur frá Njarðvík í KR. Hann fer yfir Í Vesturbæjarstórveldið þegar félagaskiptaglugginn opnar í næsta mánuði.
Amin er á sínu öðru tímabili með Njarðvík en er uppalinn hjá HK.
„Ég get alveg sagt þér það að frá mínum bæjardyrum þá hefði maður auðvitað vilja halda honum áfram og hann myndi klára tímabilið með okkur, halda áfram að þroskast," sagði Gunnar Heiðar.
Ýmsar upphæðir hafa verið nefndar í umræðunni en Innkastið heyrði að KR kaupi táninginn fyrir 6,5 milljónir og auk þess séu klásúlur um frekari greiðslur eftir ákvæðum. Þetta eru þó óstaðfestar tölur.
„Þeir fengu bara tilboð sem var erfitt að segja nei við og það er ekkert við því að gera, ég er bara þjálfarinn hérna. Fyrir mitt persónulega leyti þá finnst mér bara frábært að Amin fái þetta tækifæri."
„Ég fékk hann í hendurnar fyrir einu og hálfu ári síðan mjög brotinn ungan strák en ég sá strax að það væri eitthvað þarna, það var einhver X-faktor þarna sem ég sá allavega. Bæði ég og teymið mitt erum búin að vera vinna markvisst að því gera hann að eins góðum leikmanni og hægt er og láta hann trúa á það hvað hann er góður þegar hann vill og hann er búinn að sýna það finnst mér í þessum fyrstu leikjum í þessu móti. Við hefðum viljað halda honum áfram og klára þetta mót almennilega með okkur en það er eins og það er bara," sagði þjálfari Njarðvíkinga.
Athugasemdir