Fotbolti.net
30.05.25 - 11:07
Innkastið

KR opnaði veskið - „Alvöru upphæð fyrir Lengjudeildar-ungling“

Cosic hefur verið funheitur í Lengjudeildinni.

Cosic hefur verið funheitur í Lengjudeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn nítján ára gamli Amin Cosic hefur skorað þrjú mörk í fyrstu fjórum umferðunum með Njarðvík í Lengjudeildinni en í gær var tilkynnt að hann hefði verið keyptur til KR og fer þangað þegar glugginn opnar.

Amin er á sínu öðru tímabili með Njarðvík en er uppalinn hjá HK.
Amin Cosic fer til KR (Staðfest)
TENGT EFNI

Amin Cosic fer til KR (Staðfest)

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 2 KR
„Hann fékk ekki það tækifæri sem hann vildi í HK og ég heyrði að þegar hann hafi skorað gegn HK um daginn hafi hann fagnað í átt að HK-ingum í stúkunni. Hann sé ekki sáttur við að hafa ekki fengið brautargengi þar," segir Elvar Geir Magnússon í Innkastinu.

„Þetta er leikmaður sem hefur verið frábær og sást til dæmis í bikarleiknum gegn Stjörnunni hvers hann er megnugur. Maður er að heyra að KR sé heldur betur að opna veskið fyrir hann. Ég veit að Njarðvíkingar eru mjög ánægðir með upphæðina sem þeir fá fyrir hann. Þarf KR ekki að eyða þessum peningi í menn aftarlega?"

Ýmsar upphæðir hafa verið nefndar í umræðunni en Innkastið heyrði að KR kaupi táninginn fyrir 6,5 milljónir og auk þess séu klásúlur um frekari greiðslur eftir ákvæðum. Þetta eru þó óstaðfestar tölur.

„Þetta er alvöru upphæð fyrir Lengjudeildar-ungling," segir Haraldur Örn Haraldsson í þættinum en þar var rætt um að þörf KR væri þó helst á að styrkja sig varnarlega og grínast með hvort félagið ætti að reyna að ræna Steven Caulker sem Stjarnan er að vinna í að fá.

Óskar Hrafn Þorvaldsson var spurður út Amin Cosic eftir tapið gegn Stjörnunni í gær.

„Mjög spennandi leikmaður," segir Óskar. „Við bindum miklar vonir við hann og hlökkum til að fá hann til okkar þegar glugginn opnar. Leikinn og fljótur kantmaður, leikmaður sem okkur vantar. Okkur vantar þessa týpu sem er úti á kanti. Við höfum margar týpur sem vilja halda sig miðsvæðis. Við bindum miklar vonir við hann."
Spennandi leikmaður.

Spennandi leikmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.