PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 20:36
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool harðneitar að selja Ngumoha
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fjölmiðlar á Englandi og í Þýskalandi greina frá því að Rio Ngumoha verði ekki seldur til Bayern í sumar þrátt fyrir mikinn áhuga frá Þýskalandsmeisturunum.

Fótboltafréttamennirnir David Ornstein og Florian Plettenberg greindu frá því að Vincent Kompany, þjálfari Bayern, hafi persónulega spjallað við Ngumoha, sem er aðeins 17 ára gamall, til að sannfæra hann um að skipta yfir í þýska boltann.

Ngumoha er sagður hafa gefið munnlegt samþykki fyrir samningi en Liverpool hefur engan áhuga á að selja ungstirnið sitt.

Bayern snéri sér að Ngumoha eftir að hafa mistekist að landa Anthony Gordon, en Þýskalandsmeistararnir eru að ganga frá félagaskiptum fyrir Nathaniel Brown og Ismael Saibari.

Bæjarar vilja kantmann til að veita Luis Díaz aukna samkeppni um byrjunarliðssæti og geta Brown og Saibari báðir spilað úti á vinstri kanti. Brown er þó vinstri bakvörður að upplagi og Saibari sóknartengiliður.

Ngumoha verður 18 ára í ágúst og er samningsbundinn Liverpool næstu tvö árin.

   05.06.2026 18:12
Segir að Bayern sé með samkomulag við Ngumoha

Slapp
banner
banner
banner