Fotbolti.net
05.08.20 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Sassuolo hafnaði tilboði Napoli í Boga

Jeremie Boga

Jeremie Boga

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Sassuolo hefur hafnað 25 milljón evra tilboði Napoli í Jeremie Boga en TuttoMercatoWeb greinir frá þessu. Sassuolo vill fá 40 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Boga er 23 ára gamall en hann átti afar gott tímabil með Sassuolo þar sem hann gerði 11 mörk og lagði upp 4 í 34 leikjum.

Hann hefur skapað sér gott nafn í Seríu A og eru nú stærstu liðin á Ítalíu á eftir honum

Samkvæmt TuttoMercatoWeb þá hefur Napoli lagt fram 25 milljón evra tilboð í Boga en Sassuolo vill þó fá eitthvað í kringum 40 milljónir evra fyrir hann.

Sama heimild segir að tilboðinu hafi verið hafnað en Napoli mun leggja fram annað tilboð í leikmanninn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.