Það er bara tímaspursmál hvenær Chelsea mun kynna Marc Cucurella sem nýjan leikmann félagsins. Verið er að ganga frá pappírsmálum.
Chelsea er að kaupa hann frá Brighton. Manchester City hafði áhuga á að fá leikmanninn en fannst verðmiðinn of hár.
Cucurella fór í fyrri hluta læknisskoðunar hjá Chelsea í gær.
Samkvæmt Fabrizio Romano mun Chelsea greiða 55 milljónir punda fyrir Cucurella, sem er 24 ára bakvörður, en upphæðin gæti hækkað um sjö milljónir punda eftir ákvæðum.
„Það er verið að klára pappírsvinnu. Ég get bara sagt að Marc er magnaður leikmaður sem getur spilað ýmsar stöður," segir Thomas Tuchel, stjóri Chelsea.
Pierre-Emerick Aubameyang, sóknarmaður Barcelona, hefur verið orðaður við Chelsea en Tuchel vildi ekkert tjá sig um þær sögur á fréttamannafundi í morgun.

Tuchel on Cucurella: “Paperwork is in process. I can just say that Marc is a terrific player as he can play in many different positions”. 🔵⌛️ #CFC
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 5, 2022
On Colwill to Brighton: “If there is the chance for him to have a good loan and develop and improve, we are open to solutions”. pic.twitter.com/3mznKQQNFN
Athugasemdir