Fotbolti.net
05.08.26 - 16:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dönsku meistararnir með augastað á Daníel Leó

Dönsku meistararnir með augastað á Daníel Leó
Canon

Mynd: Matthías Már

Daníel Leó Grétarsson er samkvæmt heimildum Der Nordschleswiger á blaði hjá dönsku meisturunum í AGF. Landsliðsmaðurinn er leikmaður Sönderjyske og hefur verið hjá félaginu í þrjú ár.

Sagt er frá því að Daníel Leó sé með samkomulag við Sönderjyske um að mega fara í sumar ef rétt tilboð kemur. Hann á ár eftir af samningi sínum við félagið. Í greininni kemur fram að Sönderjyske hafi komið í veg fyrir að Daníel færi til Japans í byrjun gluggans því tilboðið var of lágt. En dönsku meistararnir hafa áhuga.
Daníel er algjör lykilmaður hjá Sönderjyske og væri mjög slæmt fyrir félagið að missa hann. Tölfræði liðsins með og á hann hans er ólík.

Í 15 leikjum án Daníels í hópnum hefur Sönderjyske fengið tíu stig eða 0,67 stig að meðaltali í leik. Með hann inn á vellinum hefur liðið fengið 71 stig í 51 leik, eða 1,39 stig að meðaltali í leik.

Þegar Daníel er ekki í liðinu hefur Sönderjyske fengið á sig 2,27 mörk að meðaltali í leik en 1,63 mörk að meðaltali þegar hann er í liðinu. Í leikjunum 15 hélt Sönderjyske aldrei hreinu.

Daníel er þrítugur örvfættur hafsent sem kom til Sönderjyske frá Slask Wroclaw árið 2023. Hann á að baki 31 A-landsleik.

Dönsku meistararnir með augastað á Daníel Leó
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.