05.08.26 - 17:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Keflavíkur og KA: Alghoul ekki með eftir uppákomu á æfingu
Danijel Djuric á bekknum

Mua Alghoul er ekki með.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Conteh er áfram í liði Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Djuric á bekknum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mua Alghoul er ekki með.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 18:00 hefst leikur Keflavíkur og KA í Bestu deild karla. Leikurinn er liður í 17. umferð deildarinnar og fer fram á HS Orku vellinum í Keflavík.
Fyrir leikinn er Keflavík í 7. sæti með 19 stig en KA er í 10. sæti með fjórum stigum minna. Fyrri leikur liðanna í sumar endaði með sigri Keflavíkur á Akureyri.
Fyrir leikinn er Keflavík í 7. sæti með 19 stig en KA er í 10. sæti með fjórum stigum minna. Fyrri leikur liðanna í sumar endaði með sigri Keflavíkur á Akureyri.

TENGT EFNI
Hvaða áhrif munu slagsmálin í Keflavík hafa?
Fótbolti.net fjallaði um það í síðustu viku að leikmaður Keflavíkur hefði nefbrotnað á æfingu liðsins eftir að hafa fengið högg í andlit frá liðsfélaga sínum. Samkvæmt heimildum var Alpha Conteh ögrað og brást hann við með því að slá Muhamed Alghoul. Conteh er á sínum stað í liði Keflavíkur en Muhamed Alghoul er ekki í hópnum og ekki heldur bróðir hans, Halid Alghoul.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir eina breytingu frá tapinu gegn Víkingi fyriir tæpum tveimur vikum síðan. Eiður Orri Ragnarsson kemur inn í liðið og Marin Mudrazija tekur sér sæti á bekknum.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Þór fyrir níu dögum síðan. Birgir Baldvinsson og Jeppe Pedersen snúa til baka úr banni og Valdimar Logi Sævarsson kemur einnig inn í liðið. Kári Gautason og Danijel Dejan Djuric taka sér sæti á bekknum en Jakob Snær Árnason tekur út leikbann.

Byrjunarlið Keflavík
- 1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
- 3. Axel Ingi Jóhannesson
- 4. Ígnacio Heras Anglada
- 6. Sindri Snær Magnússon (f)
- 7. Dagur Ingi Valsson
- 8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
- 10. Stefan Alexander Ljubicic
- 20. Marin Brigic
- 21. Alpha Conteh
- 22. Ásgeir Páll Magnússon
- 23. Eiður Orri Ragnarsson
Byrjunarlið KA
- 1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
- 2. Birgir Baldvinsson
- 6. André Rømer
- 7. Adam Ægir Pálsson
- 8. Jeppe Pedersen
- 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
- 16. Jakob Héðinn Róbertsson
- 23. Markús Máni Pétursson
- 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
- 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
- 44. Valdimar Logi Sævarsson

Conteh er áfram í liði Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Djuric á bekknum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | KR | 18 | +25 | 39 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 6 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 7 | Keflavík | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 18 | -26 | 15 |