Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. desember 2019 14:40
Elvar Geir Magnússon
Messi mjög hrifinn af Mane: Átti að enda ofar
Messi er hrifinn af Mane.
Messi er hrifinn af Mane.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, besti leikmaður heims, er mikill aðdáandi Sadio Mane, leikmanns Liverpool.

Messi kaus hann bestan í FIFA verðlaunaafhendingunni fyrr á þessu ári og telur að Senegalinn hefði átt að vera ofar í Ballon d'Or kosningunni.

„Það er leiðinlegt að sjá Mane enda í fjórða sæti," sagði Messi við Canal+.

„Það hafa margir verið góðir á þessu ári og erfitt að velja á milli. Ég kaus Sadio Mane því hann er leikmaður sem ég er mjög hrifinn af."

„Mane áti frábært ár með Liverpool. Þess vegna valdi ég hann," sagði Messi.

Mane átti stórleik í 5-2 sigri Liverpool gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Athugasemdir
banner