11.09.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Greinileg aukning á erlendum gestum hjá Víkingi

Ana frá Mexíkó og Raby frá Belís skemmtu sér vel í Hamingjunni.

Mynd: Víkingur

Ana frá Mexíkó og Raby frá Belís skemmtu sér vel í Hamingjunni.

Mynd: Víkingur
Íslandsmeistarar Víkings hófu á þessu ári að bjóða erlendum ferðamönnum upp á sérstaka leikdagsupplifun á heimaleikjum félagsins. Hugmyndin að baki verkefninu var að bæta nýrri og öðruvísi upplifun við þá fjölbreyttu afþreyingu sem ferðamönnum stendur til boða í Reykjavík.
Víkingar segja verkefnið hafa farið fram úr björtustu vonum og hefur orðið greinileg aukning á erlendum gestum á heimaleikjum liðsins í sumar.
Víkingar segja verkefnið hafa farið fram úr björtustu vonum og hefur orðið greinileg aukning á erlendum gestum á heimaleikjum liðsins í sumar.
„Við töldum að upplifun sem þessa vantaði sárlega í afþreyingarflóruna fyrir ferðamenn hér á landi. Það er því einstaklega gaman að sjá hversu vel þessu hefur verið tekið. Við höfum séð sífellt fleiri erlenda gesti á heimaleikjum okkar og viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð," segir Sverrir Geirdal, varaformaður Víkings, við heimasíðu félagsins.
Víkingar segja árangurinn ekki aðeins sjást í fjölgun erlendra gesta heldur einnig í því að ferðamenn líta á heimsóknina sem eitthvað sem vert sé að endurtaka.
„Þegar gestir eru þegar byrjaðir að skipuleggja næstu heimsókn vitum við að við erum á réttri leið. Við höfum þegar fengið gesti frá Noregi, Englandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi," segir Sverrir.

Heimild: Víkingur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð