Fotbolti.net
06.02.26 - 18:49
Elvar Geir Magnússon

Arteta fór yfir meiðslastöðuna: Saka og Ödegaard á góðum batavegi

Bukayo Saka.

Bukayo Saka.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal, sem er með sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, tekur á móti Sunderland á morgun. Mikel Arteta, stjóri liðsins, fór yfir stöðuna á meiðslamálunum á fréttamannafundi.

Bukayo Saka meiddist á vöðva í kringum mjöðmina í upphitun fyrir 4-0 sigurinn gegn Leeds fyrir viku og gat ekki tekið þátt í leiknum gegn Chelsea í deildabikarnum.

„Mjöðmin á Saka er orðin miklu betri og vonandi verður hann með okkur aftur mjög bráðlega," segir Arteta.
England um helgina - Stórleikur á sunnudag
TENGT EFNI

England um helgina - Stórleikur á sunnudag

Fyrirliðinn Martin Ödegaard var heldur ekki með gegn Chelsea en Arteta segir að hann sé einnig orðinn betri og það sé bara dagaspursmál með hann.

„Jurrien Timber er klár fyrir leikinn um helgina. Max Dowman hefur enn ekki æft með okkur svo það eru nokkrar vikur í hann, en hann er á réttri leið. Því miður verður Mikel Merino frá í nokkra mánuði. Við þurfum að styðja hann og halda honum í kringum hópinn því hann getur áfram gefið af sér til liðsins," segir Arteta.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.