06.02.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Stórleikur á sunnudag

Liverpool mætir Man CIty á sunnudag

Mynd: EPA

Liverpool mætir Man CIty á sunnudag

Mynd: EPA
Það eru margir hörkuleikir í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en hæst ber að nefna leik Liverpool og Manchester City á sunnudag.
Í kvöld mætast Leeds United og Nottingham Forest á Elland Road. Liðin eru hlið við hlið í 16. og 17. sæti deildarinnar með 26 stig.
Manchester United og Tottenham eigast við í hádegisleiknum á morgun. Man Utd er á skriði en liðið hefur unnið síðustu þrjá leiki og er að gera harða atlögu að Meistaradeildarsæti. Tottenham er áfram í basli í 14. sætinu.
Fimm leikir hefjast klukkan 15:00. Bournemouth tekur á móti Aston Villa, Fulham mætir Everton, nýliðar Burnley munu etja kappi við West Ham, botnlið Úlfana spilar við Chelsea og þá mun topplið Arsenal taka á móti Sunderland.
Arsenal þarf nauðsynlega að vinna þann leik og treysta á að Liverpool geri þeim greiða á sunnudag þegar liðið fær Manchester City í heimsókn.
Arsenal er með sex stiga forystu á Man City á toppnum, en gæti mögulega verið með níu stiga forystu eftir helgina, en til þess þarf Liverpool að vinna lærisveina Pep Guardiola.
Leikir helgarinnar:
Föstudagur:
20:00 Leeds - Nott. Forest
Laugardagur:
12:30 Man Utd - Tottenham
15:00 Bournemouth - Aston Villa
15:00 Fulham - Everton
15:00 Burnley - West Ham
15:00 Wolves - Chelsea
15:00 Arsenal - Sunderland
17:30 Newcastle - Brentford
Sunnudagur:
14:00 Brighton - Crystal Palace
16:30 Liverpool - Man City

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |