Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Lögðu ríkjandi meistara án Ronaldo
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Al-Nassr mætti meistaraliði Al-Ittihad í stórleik dagsins í Sádi-Arabíu en Cristiano Ronaldo var ekki í hóp annan leikinn í röð.

Ronaldo er í verkfalli eftir ósætti við stjórnendur sádi-arabísku deildarinnar. Hann fór í verkfall skömmu eftir að Karim Benzema, fyrrum liðsfélagi hans hjá Real Madrid, gerði slíkt hið sama þegar hann var hjá Al-Ittihad.

Benzema skipti að lokum um félag og er í dag orðinn leikmaður toppliðs Al-Hilal.

   06.02.2026 11:22
Senda út yfirlýsingu vegna Ronaldo


Al-Nassr var sterkari aðilinn í dag en staðan hélst markalaus allt þar til á lokakaflanum, þegar mörk frá Sadio Mané og Angelo réðu úrslitum.

Kingsley Coman, Marcelo Brozovic, Joao Félix, Fabinho, Danilo Pereira og Moussa Diaby voru meðal byrjunarliðsmanna í þessum stjörnum prýdda stórleik.

Þetta var sjötti sigurinn í röð hjá Al-Nassr sem er í öðru sæti, aðeins einu stigi á eftir Al-Hilal.

Al-Ittihad er að eiga vonbrigðatímabil og situr í sjöunda sæti með 34 stig eftir 20 umferðir.

Fyrr í dag vann Al-Ettifaq heimaleik gegn Damac þar sem Georginio Wijnaldum skoraði og lagði upp svo lokatölur urðu 2-0.

Al-Ettifaq er í sjötta sæti, einu stigi fyrir ofan Al-Ittihad.

Að lokum skoraði Alexandre Lacazette eina markið í sigri Neom SC gegn Al-Riyadh. Saïd Benrahma lagði upp.

Heimamenn í liði Neom áttu ekki góðan leik og voru heppnir að fara með sigur úr býtum, en þeir eru um miðja deild með 28 stig.

Al-Nassr 2 - 0 Al-Ittihad
1-0 Sadio Mane ('85, víti)
2-0 Angelo ('97)

Al-Ettifaq 2 - 0 Damac
1-0 Georginio Wijnaldum ('19)
2-0 Mukhtar Ali ('75)

Neom SC 1 - 0 Al-Riyadh
1-0 Alexandre Lacazette ('55)
Athugasemdir
banner
banner
banner