Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 11:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Senda út yfirlýsingu vegna Ronaldo
Mynd: EPA
Mynd: Al Hilal
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Framtíð Cristiano Ronaldo í Sádi-Arabíu er óljós en hann hefur í þessari viku verið í verkfalli þar sem hann er ósáttur við fyrirkomulagið í deildinni.

Al Nassr, félagið sem Ronaldo hefur spilað með, Al Hilal, Al Ahli og Al Ittihad eru öll studd af ríkissjóðnum í Sádi-Arabíu. Ronaldo er ósáttur við Al Nassr hafi ekki fengið sömu styrkingu og hin liðin.

Topplið Al Hilal fékk Karim Benzema frá Al Ittihad í vikunni og skoraði hann þrennu fyrir liðið í fyrsta leik. Ronaldo er viss um að Al Hilal sé í forgangi hjá þeim sem sjá um sjóðinn og vildi að Al Nassr yrði styrkt frekar í glugganum.

Al Nassr fékk ungan leikmann frá Írak og fannst Ronaldo það ekki nóg. Félagið hafði þegar eytt 100 milljónum punda á tímabilinu og því var ákveðið að styrkja liðið ekki frekar. Ronaldo á enn eftir að vinna deildina eftir að hann kom til Man Utd um mitt tímabil 2022/23.

Samkvæmt erlendum miðlum er ekki við ríkissjóðinn að sakast því einkaaðili kom að því að fá Benzema til Al Ahli og kemur það sjóðnum ekki við.

Ráðamenn deildarinnar hafa sent út opinbera yfirlýsingu til að reyna fá Ronaldo til að spila í kvöld. Það gera þeir með því að vara hann við og hvetja hann til að mæta aftur á völlinn.

„Aðdáendur í Sádi-Arabíu og um allan heim vilja sjá Cristiano spila og keppa aftur eins fljótt og auðið er. Stuðningurinn sem hann hefur fengið síðan hann kom til konungsríkisins er enn til staðar og það er enn mikið til að spila um,“ sagði háttsettur embættismaður.

Talsmaður deildarinnar sagði svo eftirfarandi:

„Sádi-arabíska atvinnumannadeildin er byggð upp í kringum einfalda meginreglu: hvert félag starfar sjálfstætt samkvæmt sömu reglum."

„Félög hafa sínar eigin stjórnir, sína eigin framkvæmdastjóra og sína eigin stjórnendur. Ákvarðanir um ráðningar, útgjöld og stefnumótun eru hjá þessum félögum, innan fjárhagsramma sem er hannaður til að tryggja sjálfbærni og samkeppnisjafnvægi. Sá rammi gildir jafnt um alla deildina."

„Cristiano hefur lagt sig allan fram hjá Al Nassr frá komu sinni og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í vexti og metnaði félagsins. Eins og hver annar afreksmaður vill hann vinna. En enginn einstaklingur - hversu mikilvægur sem hann er - tekur ákvarðanir utan eigin félags."

„Nýleg félagaskipti sýna þetta sjálfstæði greinilega. Eitt félag styrktist á ákveðinn hátt. Annað valdi aðra nálgun. Þetta voru ákvarðanir félagsins, teknar innan samþykktra fjárhagsramma."

„Samkeppnishæfni deildarinnar talar sínu máli. Með aðeins fáeinum stigum sem skilja að fjögur efstu liðin er titilbaráttan mjög lifandi. Þetta jafnvægi endurspeglar kerfi sem virkar eins og til er ætlast.“

„Áherslan er enn á fótboltann - á vellinum, þar sem hann á heima - og að viðhalda trúverðugri og samkeppnishæfri keppni fyrir leikmenn og aðdáendur,"
segir talsmaður deildarinnar.

Ronaldo spilaði ekki síðasta leik Al Nassr en hann er heill heilsu og hefur æft með liðinu. Hann varð 41 árs í gær og á átján mánuði eftir af samningi sínum við félagið. Með sigri á Al Ittihad í kvöld minnkar Al Nassr forystu Al Hilal niður í eitt stig.

Hjá Al Nassr eru stór nöfn eins og Marcelo Brozovic, Kingsley Coman, Sadio Mane og Joao Felix ásamt Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner