Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 06. mars 2021 17:24
Victor Pálsson
Guardiola dáist mikið að leikmanni Man Utd
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, er mikill aðdáandi sóknarmannsins Edinson Cavani sem leikur með grönnunum í Manchester United.

Cavani verður með Man Utd á morgun sem spilar við City í mikilvægum leik í ensku úrvalsdeildinni en um er að ræða tvö efstu lið deildarinnar.

Man City getur farið langleiðina með að tryggja sér titilinn með sigri en liðið er nú með 14 stiga forskot á toppnum.

Guardiola dáist að Cavani sem kom til Man Utd á frjálsri sölu á síðasta ári. Hann raðaði áður inn mörkum fyrir bæði Napoli og Paris Saint-Germain.

„Þeir eru svo sterkir á öllum vígstöðvum. Varnarlega, með Bruno Fernandes og hraðinn í Daniel James, Marcus Rashford og Anthony Martial," sagði Guardiola.

„Reynsla Edinson Cavani, það er leikmaðurinn sem ég dáist hvað mest af vegna þess sem hann hefur gert á ferlinum."

„Þetta er Manchester United. Það eru forréttindi að fá að berjast við þá og að vera fyrir ofan þá í töflunni."
Athugasemdir
banner
banner