Konan sem sakar brasilíska sóknarmanninn Neymar um nauðgun hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um atvikið.
Neymar hefur haldið fram sakleysi sínu og segir að þau hafi stundað kynlíf með vilja beggja aðila.
Þau voru saman á hótelherbergi í París.
Neymar hefur haldið fram sakleysi sínu og segir að þau hafi stundað kynlíf með vilja beggja aðila.
Þau voru saman á hótelherbergi í París.
Konan hetir Najila Trindade Mendes de Souza, búsett í Brasilíu, og kynntist hún Neymar í gegnum samfélagsmiðla. Neymar bauð henni til Parísar að hitta sig.
Í viðtali við brasilíska sjónvarpsstöð segist Najila fyrst hafa samþykkt að sofa hjá fótboltastjörnunni en eftir að hún komst að því að hann væri ekki með getnaðarvarnir hafi hún hætt við.
„Þegar ég spurði hann hvort hann hefði tekið með sér smokk þá sagði hann nei. Þá sagði ég honum að ekkert myndi eiga sér stað milli okkar," segir Najila.
„Hann svaraði engu. Við héldum áfram og hann sneri mér við og framkvæmdi verknaðinn þrátt fyrir að ég hafi beðið hann um að hætta. Á meðan þá sló hann mig og var árásargjarn. Þetta gerðist allt mjög hratt."
Konan tilkynnti um nauðgun til lögreglunnar í Brasilíu síðasta föstudag. Neymar heldur fram sakleysi sínu og segir um fjárkúgun að ræða.
Athugasemdir