Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum.
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   lau 06. júní 2026 18:21
Hafþór Örn Laursen
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Gunnar Már, þjálfari Fjölnis
Gunnar Már, þjálfari Fjölnis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Már Guðmundsson var að sinni eigin sögn fúll eftir leik Fjölnis í dag, en þeir tóku á móti Selfossi í 6. umferð 2. deildar þar sem Selfoss bar 2-3 sigur að býtum.

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 -  3 Selfoss

Heilt yfir fannst mér þetta jafn leikur og við köstum þessu frá okkur í byrjun seinni hálfleiks. Við byrjuðum svolítið neðarlega í fyrri hálfleik og leyfðum þeim að stjórna leiknum en eftir 20 mínútur fannst mér við taka yfir.''

„Mér fannst við geta komið í veg fyrir þessa skyndisókn sem leiddi til fyrsta marksins. Síðan köstum við þessu frá okkur í byrjun seinni hálfleiks með tveimur mistökum sem leiða til markanna þeirra.''


Mikael Breki Jörgensson og Patryk Hryniewicki minnkuðu muninn fyrir Fjölni með tveimur mörkum á tveggja mínútna millibili

„Þegar við skorum fannst mér mómentumið komið okkar megin og við vildum þetta. Við komum boltanum í finum stöðum og það munaði ekki miklu í nokkur skipti. Þeir drápu síðan tempóið undir lokin.

Fjölnir á næst leik við KFA fyrir austan á miðvikudaginn. Gunnar var spurður hvort að hann muni hvíla einhverja leikmenn fyrir þann leik.

„Nei, við munum ekki getað hvílt mikið. Það er bara spurning hvernig menn koma úr þessum leik''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner