Auðun Helgason hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann vegna atviks sem átti sér stað í leik Þróttar Vogum gegn Kormáki/Hvöt þann 31. maí.
Liðin gerðu jafntefli og sauð uppúr að leikslokum þegar Auðun tók utan um leikmann Kormáks/Hvatar sem endaði með rifrildum.
Auðun var sakaður um að hafa tekið leikmann andstæðinganna hálstaki en þvertók fyrir það í viðtali í vikunni.
Málið rataði á borð aga- og úrskurðanefndar sem ákvað að dæma Auðun í eins leiks bann. Þrótti er einnig gert að greiða 20 þúsund króna sekt.
Auðun verður því í hliðarlínubanni á Dalvík í dag, þegar Vogamenn heimsækja Dalvík/Reyni í 2. deildinni.
01.06.2026 16:23
Auðun neitar að hafa tekið leikmann hálstaki - „Fer reglulega inn á völlinn með þann ásetning að meiða“





