Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem greinir frá félagaskiptum Ansu Fati til Mónakó.
Hann segir Mónakó hafa náð samkomulagi við Barcelona um kaupverð fyrir kantmanninn sem þótti á sínum tíma vera einn efnilegasti fótboltamaður heims.
Samkomulagið hljóðar ekki upp á nema 11 milljónir evra, en Ansu Fati lék á láni hjá Mónakó á nýliðinni leiktíð. Þar tókst honum að skora 12 mörk í 30 leikjum.
Það er endursöluákvæði með í kaupsamningnum sem segir til um að Börsungar fái hluta af næsta kaupverði fyrir Ansu Fati ef hann verður seldur frá Mónakó.
Ansu Fati er spenntur að spila undir stjórn Brasilíumannsins Filipe Luís sem er að taka við stjórn á Mónakó.
03.05.2026 10:48
Markmiðið er að selja Ansu Fati




