Sara Björk Gunnarsdóttir skrifaði undir samning við uppeldisfélagið sitt Hauka í gær eftir farsælan atvinumannaferil. Hún fór í atvinnumennsku árið 2011 eftir þrjú tímabil með Breiðabliki.
Hún sagði í samtali við Fótbolta.net að þetta hafi verið góður tímapunktur að snúa aftur heim.
Hún sagði í samtali við Fótbolta.net að þetta hafi verið góður tímapunktur að snúa aftur heim.
„Ég er búin að eiga langan atvinnumannaferil, búin að vera lengi frá fjölskyldu. Maður finnur það á ákveðnum tímapunkti hvenær maður er tilbúinn að koma heim. Ég og Árni fundum það bæði að við viljum vera nær fjölskyldunni. Líka fyrir Ragnar strákinn okkar að komast meira inn í íslenska samfélagið og nær fjölskyldunni," sagði Sara Björk en Árni Vilhjámsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks, er unnusti Söru Bjarkar. Hann hefur verið orðaður við Breiðablik.
„Ég vissi aldrei hvort ég ætlaði að klára ferilinn úti eða ekki. Ég bjóst við því að spila lengi, var búin að hugsa vel um mig og líður ágætlega. Ég var ekki viss um hvort að ég vildi spila heima. En eins og staðan er núna og aðstæður þá er ég ánægð að taka þá ákvörðun um að koma heim og spila með stelpunum á Ásvöllum."
Sara hóf meistaraflokksferilinn með Haukum en gekk til liðs við Blika árið 2008. Hún sagðist hafa rætt við Blika en aðeins Haukar hafi komið til greina. Samningur hennar við sádi arabíska félagið Al Qadsiah rennur út um áramótin og þá getur hún byrjað að æfa og spila með Haukum sem eru á toppnum í Lengjudeildinni.
„Það yrði leiðinlegt ef við byrjum að tapa þegar ég kæmi inn. Vonandi get ég komið og gefið af mér og lagt mitt að mörkum til að hjálpa liðinu og við getum spilað ennþá betur og vonandi farið upp," sagði Sara Björk.
Sara Björk kann vel við sig í treyju númer sjö en hún verður númer sjötíu og sjö. Hún var einnig í þeirri treyju hjá Juventus.



