Stefán Logi Sigurjónsson er búinn að skrifa undir samning við ÍA sem gildir út leiktímabilið 2028, eða í tvö og hálft ár.
Stefán Logi gekk til liðs við ÍA í vetur en hann er fæddur árið 2008 og hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hlekkur í liði Kára sem er óvænt í toppbaráttu í 2. deild.
Stefán er stór og stæðilegur varnarmaður sem er uppalinn hjá Fylki og á þrjá leiki að baki fyrir U16 landsliðið.
„Við hlökkum til að fylgjast með Stefáni Loga vaxa og dafna hjá félaginu á næstu misserum," segir meðal annars í tilkynningu frá Skaganum.



