Enrique Riquelme er að gera sitt besta til að valda usla og vera kjörinn sem næsti forseti Real Madrid, en útlitið er ekki gott fyrir hann.
Riquelme er að berjast við Florentino Pérez í kosningabaráttu og er Pérez búinn að lofa ýmsum hlutum sem hann getur staðið við, annað en Riquelme.
Riquelme lofar að reyna við Rodri, Erling Haaland og Jürgen Klopp ef hann nær kjöri, en umboðsteymi Haaland gagnrýndi hann harðlega fyrir að nefna nafn norsku markavélarinnar.
Núna er komið að umboðsmanni Klopp að gagnrýna orð Riquelme, sem lét nafn Klopp falla í gær.
„Það er ekki möguleiki að þetta gerist. Þetta er mjög pirrandi útaf því að Jurgen ætlar ekki að snúa aftur í þjálfun í sumar. Honum líður mjög vel hjá Red Bull," segir umboðsmaður Klopp.
05.06.2026 22:05
Riquelme: Viljum ráða Klopp sem þjálfara




