Franska félagið Marseille hefur sett 55 milljóna evra verðmiða á enska sóknarmanninn Mason Greenwood.
Þessi 24 ára gamli leikmaður skilaði frábærum tölum með Marseille á tímabilinu.
Hann skoraði 26 mörk og gaf 11 stoðsendingar í 45 leikjum á vonbrigðatímabili hjá félaginu, sem komst ekki í Meistaradeild Evrópu.
Þau vonbrigði þýða að Marseille þarf að losa sig við leikmenn í sumarglugganum. Gregory Lorenzi, yfirmaður íþróttamála hjá Marseille, viðurkenndi í viðtali við L'Equipe á dögunum að félagið væri opið fyrir því að selja Greenwood, sem var annar markahæsti leikmaður frönsku deildarinnar á tímabilinu.
Tyrkneska félagið Fenerbahce og ítalska félagið Roma hafa mikinn áhuga á Greenwood, sem Marseille metur á 55 milljónir evra.


