Það var nokkuð um vináttulandsleiki sem fóru fram í gær og í nótt og komu nokkrar HM-þjóðir við sögu.
Haítí tapaði gegn Perú eftir að hafa verið með forystu nánast allan leikinn. Wilson Isidor kom Haíti yfir snemma leiks en Perú snéri stöðunni við með tveimur mörkum á lokakaflanum.
Haítí er í riðli með Brasilíu, Marokkó og Skotlandi en Perú fer ekki á lokamótið.
Heimamenn í liði Kanada tóku þá á móti Írlandi og náðu forystunni fyrri hálfleik en Írarnir jöfnuðu í þeim síðari, svo lokatölur urðu 1-1.
Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Íra og er Kanada er í riðli með Bosníu, Katar og Sviss.
Sádi-Arabía fór lét með Púertó Ríkó í sínum næstsíðasta undirbúningsleik fyrir riðlakeppnina. Sádar eru með Úrúgvæ, Spáni og Grænhöfðaeyjum í riðli.
Paragvæ, sem er í riðli með Bandaríkjunum, Ástralíu og Tyrklandi, fór þá létt með Níkaragva í vináttulandsleik í gærkvöldi.
Í öðrum leikjum gærdagsins hafði Ungverjaland betur gegn Finnlandi og skoraði Khvicha Kvaratskhelia í sigri Georgíu gegn Barein.
Haítí 1 - 2 Perú
Kanada 1 - 1 Írland
Púertó Ríkó 1 - 3 Sádi-Arabía
Paragvæ 4 - 0 Níkaragva
Finnland 1 - 2 Ungverjaland
San Marínó 1 - 2 Bangladess
Aserbaídsjan 0 - 2 Malta
Slóvakía 2 - 2 Svartfjallaland
Moldóva 2 - 2 Búlgaría
Georgía 2 - 0 Barein
Singapúr 1 - 2 Kína
Hong Kong 2 - 0 Mongólía
Taíland 2 - 2 Kúveit
Indónesía 3 - 0 Óman
Tadsíkistan 3 - 1 Indland
Belarús 4 - 1 Sýrland
Benín 1 - 1 Níger
Mið-Afríkulýðveldið 1 - 1 Tógó
Angóla 1 - 1 Máritanía
Rússland 3 - 0 Búrkína Fasó
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



