Þessa stundina eigast við Fulham og Liverpool í fyrsta leik dagsins í ensku úrvaldeildinni.
Nýliðarnir frá London hafa verið líflegir í fyrri hálfleiknum og Liverpool hefur verið í vandræðum á köflum. Fulham hefur átt fína sénsa eftir skyndisóknir á meðan Liverpool hefur stjórnað leiknum en ekki skapað sér mörg færi. Eitt þeir kom frá Luis Diaz en hann skaut þá í stöngina.
Á 32. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Eftir fína sókn átti Kenny Tete flotta fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Serbinn Aleksandar Mitrovic át Trent Alexander-Arnold í loftinu og stangaði boltann í netið.
Alisson Becker var í boltanum en það dugði ekki til. Liverpool vildi fá aukaspyrnu í aðdraganda marksins en leikmenn liðsins vildu meina að brotið hafi verið á Jordan Henderson rétt áður.
Markið má sjá hérna.