Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. september 2019 18:38
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu glæsilegt mark Jóns Dags með U21
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Íslenska U21 landsliðið er 3-0 yfir gegn Lúxemborg þegar aðeins tíu mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma.

Staðan var markalaus í hálfleik en Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði úr vítaspyrnu strax eftir leikhlé. Jón Dagur Þorsteinsson tvöfaldaði forystuna skömmu síðar með glæsimarki sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Jón Dagur fékk boltann úti á vinstri kanti og lék inn á miðsvæðið í átt að vítateignum. Hann færði sig nær teignum, lét vaða og skoraði glæsilegt mark sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Þetta var fyrsti leikur Strákanna okkar í erfiðum undanriðli fyrir EM 2021. Írland er einnig í riðlinum ásamt Ítalíu, Svíþjóð og Armeníu.


Athugasemdir
banner
banner
banner