Mikel Arteta þjálfari Arsenal var mjög ánægður eftir sigur gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag og hrósaði Viktor Gyökeres í hástert.
Sænski framherjinn kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk í 3-0 sigri sem var þó talsvert erfiðari heldur en lokatölurnar segja til um.
Það tók Gyökeres sex mínútur að skora eftir innkomuna af bekknum og setti hann seinna markið sitt í uppbótartíma. Þetta eru mikilvæg mörk fyrir Svíann sem hefur mætt gagnrýni fyrir litla markaskorun á sínu fyrsta tímabili hjá Arsenal.
Núna er það þó búið að breytast og er hann kominn með 6 mörk í síðustu 8 leikjum eftir dræma markaskorun á fyrri hluta tímabils.
„Sjálfstraust er galdraorðið. Við erum að gera okkar besta til að standa við bakið á honum og það er að skila sér. Hann er á mjög góðum stað þessa stundina," sagði Arteta eftir sigurinn.
„Það er augljóslega mikil ábyrgð og pressa í hvert skipti sem þú setur Arsenal treyjuna á, til að tala ekki um væntingarnar. Það er eitthvað sem leikmenn verða að læra að lifa með.
„Á vegferðinni munu vera stundir þar sem þér gengur mjög vel og stundir þar sem róðurinn er þyngri. Þegar það kemur að Viktor er mjög erfitt að skilja tilfinningarnar hans því hann er alltaf á sama stað. Það er eins og hápunktarnir og lágpunktarnir hafi ekki mikil áhrif á hann. Hann er mjög kröfuharfur á sjálfan sig og er alltaf að reyna að bæta sig.
„Ég elska persónuleikann hans og hversu einbeittur hann mætir á æfingasvæðið á hverjum einasta degi. Hann lifir svo sannarlega í núinu og er rosalega mikill liðsmaður, hann er alltaf að reyna að hjálpa liðsfélögunum hvernig sem hann mögulega getur."
Arsenal trónir á toppi úrvalsdeildarinnar með níu stiga forystu á Manchester City sem á þó leik til góða.
07.02.2026 17:05
England: Gyökeres skoraði tvö og Arsenal með níu stiga forystu - Söguleg þrenna Palmer
Athugasemdir




