Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 17:14
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Newcastle og Brentford: Guimaraes kominn aftur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Newcastle United spilar við Brentford í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Stóru fréttirnar eru þær að hinn ómissandi Bruno Guimaraes er kominn aftur í byrjunarlið heimamanna í Newcastle eftir meiðsli. Hann tekur sér sæti við hlið Sandro Tonali og Joe Willock á miðsvæðinu, en Joelinton er ennþá fjarverandi.

Harvey Barnes og Jacob Murphy byrja á sitthvorum kantinum með Yoane Wissa í fremstu víglínu þar sem hann mætir sínum gömlu liðsfélögum í fyrsta sinn eftir félagaskiptin.

Eddie Howe þjálfari gerir því í heildina fjórar breytingar frá 4-1 tapi gegn Liverpool í síðustu umferð og fimm breytingar frá 3-1 tapi gegn Manchester City í undanúrslitum deildabikarsins í miðri viku.

Keith Andrews þjálfari Brentford neyðist til að gera eina breytingu frá fræknum sigri á Aston Villa um síðustu helgi. Keane Lewis-Potter kemur á kantinn í staðinn fyrir Kevin Schade sem er í leikbanni.

Fyrirliðinn Nathan Collins er kominn á bekkinn eftir meiðsli en Andrews ætlar að gefa sama miðvarðapari traustið og hélt hreinu gegn Villa.

Newcastle: Pope; Trippier, Thiaw, Botman, Hall; Guimaraes, Tonali, Willock; Murphy, Wissa, Barnes
Varamenn: Ramsdale, Osula, Elanga, Woltemade, Burn, A.Murphy, Ramsey, Shahar, Neave

Brentford: Kelleher; Kayode, Van den Berg, Ajer, Henry; Henderson, Jensen, Janelt; Ouattara, Thiago, Lewis-Potter
Varamenn: Valdimarsson, Hickey, Pinnock, Nelson, Yarmoliuk, Collins, Damsgaard, Donovan, Furo
Athugasemdir
banner