26.10.26 - 14:30
Enski boltinn
Mögulega er besti kosturinn sá ólíklegasti

Antonio Conte.

Mynd: EPA

Jason Wilcox er yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United.

Mynd: EPA

Conte er áhugaverður persónuleiki.

Mynd: EPA

Antonio Conte.

Mynd: EPA
Michael Carrick mun líklega ekki endast mikið lengur í starfi sínu sem stjóri Manchester United.
Þá er spurning hver tekur við. Talið er að þrír kostir komi aðallega til greina; það eru Eddie Howe, Julian Nagelsmann og Antonio Conte.

Sá síðastnefndi er hugsanlega besti kosturinn í starfið en sá ólíklegasti af þessum þremur eins og rætt var um í Enski boltinn hlaðvarpinu í gær.
„Við þekkjum Conte vel," sagði Haraldur Örn, stuðningsmaður Chelsea, í hlaðvarpinu en Conte varð Englandsmeistari með Chelsea árið 2017.
„Eftir þessa eyðimerkurgöngu sem United hefur verið í síðustu ár, þá væri spennandi að fá inn Conte. Hann kemur yfirleitt með velgengni í stuttan tíma, og skilur stundum eftir sig brunarústir, en það væri skemmtilegt í smá tíma," sagði Haraldur.
„Conte hefur engan tíma fyrir svona kjaftæði í leikmönnum," sagði Brynjar Jökull Guðmundsson í þættinum. „Hann er yfirleitt í stuttan tíma samt hjá öllum félögum."
„Hann er náttúrulega bara geðbilaður," sagði Haraldur.
Ashley Young, sem spilaði fyrir Conte hjá Inter, fór nýverið í viðtal og ræddi um ítalska stjórann. Hann sagði að hann væri „klikkaður" og setti upp spurningamerki við það hvort Conte myndi virka hjá United þar sem hann krefst þess að leikmenn sínir hlaupi og hlaupi. Það er eitthvað sem leikmenn Man Utd hafa ekki gert á þessu tímabili en þeir mælast neðarlega í öllum hlaupatölum. Conte er líklega óhræddur við að tjá skoðanir sínar við þá sem stjórna.
„Ég held að það sé enginn séns á því að þessir eigendur Manchester United og Jason Wilcox, sem er yfirmaður fótboltamála, séu að fara að ráða Conte. Ég held að þeir þori því ekki," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.
„Hann myndi jarða þessa menn og er ekkert hræddur við það. Ég held líka að leikmennirnir séu skíthræddir við Conte. Ég held að Conte sé ólíklegastur af þessum þremur kostum út frá því hvernig persónuleiki hann er," sagði Guðmundur jafnframt en kannski er einmitt sá sem Man Utd þarf á þessum tímapunkti til að taka til hjá liðinu.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.