Fotbolti.net
07.02.26 - 14:26
Brynjar Ingi Erluson

England: Man Utd vann fjórða leikinn í röð - Romero skúrkurinn

Bryan Mbeumo skoraði fyrra mark United

Bryan Mbeumo skoraði fyrra mark United

Canon

Mynd: EPA

Manchester Utd 2 - 0 Tottenham
1-0 Bryan Mbeumo ('38 )
2-0 Bruno Fernandes ('81 )
Rautt spjald: Cristian Romero, Tottenham ('29)
Manchester United vann fjórða deildarleikinn í röð er liðið lagði tíu leikmenn Tottenham, 2-0, í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í dag.

United-menn byrjuðu af krafti og fékk Bryan Mbeumo gott færi til þess að skora strax á fyrstu mínútunni en skot hans framhjá markinu og þá átti Matheus Cunha tilraun rétta framhjá sömuleiðis.

Nokkrum mínútum síðar umtalaðasti leikmaður Tottenham síðustu vikur, Cristian Romero, að líta rauða spjaldið fyrir tæklingu á Casemiro. Romero var of seinn og steig á Casemiro.

Þetta var annað rauða spjaldið sem Romero fær á tímabilinu og þar með kominn í fjögurra leikja bann.

Þetta hjálpaði United-mönnum í leit að fjórða sigrinum í röð en níu mínútum síðar skoraði Mbeumo með lúmsku skoti eftir vel útfærða hornspyrnu Bruno Fernandes á Kobbie Mainoo, sem kom boltanum á Mbeumo. Hann fékk boltann í miðjum teignum og skaut boltanum með hnitmiðuðu en ekkert svo föstu skoti neðst í hægra hornið.

Stuttu síðar varði Guglielmo Vicario frá Casemiro. Man Utd með algera yfirburði þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Sagan var ekki heldur að hjálpa Tottenham, en fyrir þennan leik hafði United aldrei tapað þegar liðið hefur verið með forystu í hálfleik í ensku úrvalsdeildinni og var það ekkert að fara breytast í dag.

Amad Diallo taldi sig hafa komið United í 2-0 forystu snemma í síðari hálfleiknum eftir að Luke Shaw kom boltanum á fjærstöngina þar sem Diallo lúrði, en markið var tekið strax af vegna rangstöðu. Afar tæpt.

United náði í annað markið til að ganga frá leiknum. Diogo Dalot kom með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn, í gegnum pakkann og á Bruno Fernandes sem afgreiddi boltann laglega í hægra hornið og gulltryggði sigurinn.

Fjórði deildarsigur Man Utd í röð sem er í 4. sæti með 44 stig, fjórum stigum á undan Chelsea sem er í fimmta sætinu og vonir United um að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili heldur betur að aukast. Tottenham er í 14. sæti með aðeins 29 stig.

Man Utd mætir næst West Ham í Lundúnum og það á eftir að verða taugatrekkjandi stund fyrir United-stuðningsmanninn Frank Ilett sem ákvað í október 2024 að hætta að klippa á sér hárið þangað til United myndi vinna fimm leiki í röð. Sá er orðinn heldur hárprúður, en það er aldrei að vita nema hárið fái að fjúka í næstu viku.
Cristian Romero sá rautt í fyrri hálfleiknum

Cristian Romero sá rautt í fyrri hálfleiknum

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.