Englendingurinn Cole Palmer er kominn með þrennu fyrir Chelsea gegn Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni en öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Þetta er í þriðja sinn sem hann skorar þrennu í fyrri hálfleik og sá eini í sögunni til að ná þeim áfanga.
Palmer skoraði úr tveimur vítaspyrnum með 22 mínútna millibili í fyrri hálfleiknum og fullkomnaði síðan þrennu sína á 38. mínútu.
Þar með skráði hann sig á spjöld sögunnar, en þetta er í þriðja sinn sem hann skorar þrennu í fyrri hálfleik í deildinni.
Hann skoraði fernu í fyrri hálfleik í 4-2 sigri á Brighton í apríl 2024 og síðan þrennu í fyrri hálfleik í 6-0 sigri á Everton í september sama ár.
Palmer er sá eini í sögunni sem hefur skorað þrjár þrennur í fyrri hálfleik í deildinni. Magnað afrek hjá Englendingnum er búinn að finna sitt gamla form.
3 - Cole Palmer is the first player in Premier League history to score three hat-tricks in the first half of a match (also vs Everton and Brighton). Ice. pic.twitter.com/lDHS4SGLq6
— OptaJoe (@OptaJoe) February 7, 2026
Athugasemdir


