Rúrik Gunnarsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að yfirgefa HK. Honum er frjálst að finna sér nýtt lið.
Rúrik er tvítugur fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað miðsvæðis og í vörninni.
Hann var keyptur til HK frá KR fyrir rúmu ári síðan og lánaður til Grindavíkur síðasta sumar.
Rúrik er tvítugur fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað miðsvæðis og í vörninni.
Hann var keyptur til HK frá KR fyrir rúmu ári síðan og lánaður til Grindavíkur síðasta sumar.
Hann er uppalinn hjá Breiðabliki en þreytti frumraun sína í meistaraflokki í Vesturbænum með KV, hann hefur einnig spilað með Aftureldingu, HK og svo tíu Lengjudeildarleiki með Grindavík á síðasta tímabili.
Rúrik á að baki tólf leiki fyrir yngri landsliðin.
Athugasemdir



