Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
banner
   lau 07. mars 2026 16:59
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: HK vann Ægi - Sjáðu mörkin
Karl Ágúst skoraði sigurmark HK
Karl Ágúst skoraði sigurmark HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK-ingar unnu Ægi, 2-1, í A-deild Lengjubikarsins í Kórnum í dag.

Tumi Þorvarsson, sem framlengdi samning sinn við HK á dögunum hélt upp á það með marki á 15. mínútu leiksins áður en Jordan Adeyemo, markahæsti maður 2. deildar á síðasta tímabili, jafnaði metin þrettán mínútum síðar.

Karl Ágúst Karlsson tryggði HK-ingum stigin þrjú og þriðja sigurinn í Lengjubikarnum þetta árið á 42. mínútu.

HK hafnaði í 3. sæti riðils 1 með 10 stig en Ægir hafnaði án stiga í neðsta sæti.

Haukar og Þróttur Vogum gerðu 3-3 jafntefli í knatthúsi Hauka í B-deildinni.

Staðan var 2-2 eftir viðburðaríkan fyrri hálfleik. Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði tvívegis fyrir Hauka.

Jón Gísli Stefánsson kom Haukum yfiir í upphafi síðari hálfleiks áður en Birgir Halldórsson jafnaði metin tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Haukar eru á toppi riðils 3 með 7 stig en Vogamenn á botninum með 1 stig.

A-deild - riðill 1:

HK 2 - 1 Ægir
1-0 Tumi Þorvarsson ('15 )
1-1 Jordan Adeyemo ('28 )
2-1 Karl Ágúst Karlsson ('42 )

B-deild - riðill 3:

Haukar 3 - 3 Þróttur V.
0-1 Benóný Haraldsson ('5 )
1-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('34 )
2-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('38 )
2-2 Franz Bergmann Heimisson ('43 )
3-2 Jón Gísli Stefánsson ('47 )
3-3 Birgir Halldórsson ('72 )


Stöðutaflan Ísland Lengjubikar karla
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner
banner