Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 07. júní 2018 09:11
Magnús Már Einarsson
Andri Lucas getur valið á milli Barcelona og Real Madrid
Eiður Smári, faðir Andra, spilaði með Barcelona á sínum tíma.
Eiður Smári, faðir Andra, spilaði með Barcelona á sínum tíma.
Mynd: Getty Images
Barcelona og Real Madrid vilja bæði fá Andra Lucas Guðjohnsen í unglingalið sín fyrir næta tímabil. Spænska íþróttablaðið Sport segir frá þessu í dag.

Andri Lucas er fæddur árið 2002 en hann skoraði 17 mörk með U16 ára liði Espanyol á nýliðnu tímabili.

Andri er sonur Eiðs Smára Guðjohnsen fyrrum leikmanns Barcelona. Yngri bróðir hans, Daniel Tristan, spilar í yngri flokkum Barcelona.

Þó er ekki sjálfgefið að Andri velji að fara til Barcelona á næsta tímabili því Real Madrid ku hafa boðið honum gott tilboð.

Andri þarf nú að velja á milli erkifjendanna í Barcelona og Real fyrir næsta tímabil.

Andri hefur skorað fimm mörk í þrettán leikjum með U17 ára landsliði Íslands en hann á einnig leiki að baki með U18 ára landsliðinu.
Athugasemdir
banner