Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segist vilja halda miðjumanninum Dani Ceballos hjá félaginu.
Ceballos er í láni frá Real Madrid og Arteta hefur verið ánægður með frammistöðu hans.
„Ég er virkilega ánægður með hann. Ég elska hversu mikið hann leggur í fótboltann, ásríðuna á öllum æfingum og leikjum. Hann fagnar og setur líf og sál í þetta, hvort sem hann er inni á vellinum eða á bekknum," sagði Arteta.

„Hann er að þróast í rétta átt og hefur orðið mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur."
„Við erum að tala við félagið hans því að við eigum ekki leikmanninn. Þetta er ekki í okkar höndum. Félögin þurfa að ræða saman og sjá hvað við getum gert."
Athugasemdir