Fotbolti.net
07.07.20 - 22:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Ótrúleg endurkoma Milan gegn Juve

Ítalía: Ótrúleg endurkoma Milan gegn Juve
Canon

Mynd: Getty Images

Milan 4 - 2 Juventus
0-1 Adrien Rabiot ('47)
0-2 Cristiano Ronaldo ('53)
1-2 Zlatan Ibrahimovic ('62, víti)
2-2 Franck Kessie ('66)
3-2 Rafael Leao ('67)
4-2 Ante Rebic ('80)
Viðureign AC Milan og Juventus var stórfurðuleg er liðin mættust fyrr í kvöld.

Staðan var markalaus eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik en Adrien Rabiot og Cristiano Ronaldo skoruðu tvö fyrir Ítalíumeistara Juve í upphafi síðari hálfleiks.

Rabiot skoraði glæsilegt mark eftir frábært einstaklingsframtak og tvöfaldaði Ronaldo forystuna eftir frábæra sendingu innfyrir vörnina frá Juan Cuadrado.

Zlatan Ibrahimovic minnkaði muninn á 62. mínútu þegar hann skoraði úr vítaspyrnu, sem var dæmd eftir að boltinn fór í hönd Leonardo Bonucci innan teigs.

Skömmu síðar labbaði Franck Kessie í gegnum vörn Juve og jafnaði leikinn. Rúmri mínútu eftir það var Rafael Leao búinn að snúa stöðunni við með þriðja marki Milan.

Heimamenn voru þó ekki búnir því Ante Rebic fullkomnaði endurkomuna á 80. mínútu eftir slæm mistök Alex Sandro sem gaf boltann frá sér í vörn.

Það voru því sex mörk skoruð í seinni hálfleik og komu fjögur mörk Milan á tæplega tuttugu mínútna kafla.

Juve er áfram með sjö stiga forystu á toppi Serie A. Sigurinn er mikilvægur fyrir Milan sem er í harðri baráttu um Evrópusæti.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Ítalía: Ótrúleg endurkoma Milan gegn Juve
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta9-111
14Lecce10-109
15Sassuolo9-88
16Monza10-77
17Fiorentina9-105
18Parma9-105
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.