Fotbolti.net
07.07.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Frá PSG til Atlético

Frá PSG til Atlético
Canon

Mynd: EPA

Suður-kóreski sóknartengiliðurinn Lee Kang-in er á leið til Atlético Madríd frá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain. Þetta segir Fabrizio Romano á X.
Atlético greiðir PSG 40 milljónir evra fyrir Kang-in Lee, sem hefur leikið með franska félaginu síðustu þrjú ár.

Kang-in náði sjálfur munnlegu samkomulagi við Atlético fyrir nokkrum mánuðum og nú hafa félögin einnig náð saman.

„Here we go!“ segir Romano og því virðist aðeins tímaspursmál hvenær gengið verður formlega frá félagaskiptunum.

Þetta verður þriðji leikmaðurinn sem PSG selur í sumar, á eftir Goncalo Ramos, sem fór til AC Milan fyrir metfé, og Noham Kamara, sem gekk í raðir Lyon.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.