Fotbolti.net
04.07.26 - 20:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alex Freyr laufléttur: Á eftir að tala við konuna

Auglýsing
Alex Freyr laufléttur: Á eftir að tala við konuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr Hilmarsson var hetja ÍBV þegar liðið vann Val í dag. Fótbolti.net ræddi við hann eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 Valur
„Þegar lið koma hingað þá vilja þau gíra sig í slagsmál, maður hefur fundið fyrir því. Við þurfum að mæta því og bæta um betur," sagði Alex Freyr.

„Við eigum fyllilega skilið að vinna þennan leik, þeir voru ekki að skapa sér neitt. Við erum loksins að halda hreinu. Við fáum fullt af góðum stöðum sem við förum illa með, það er margt mjög jákvætt en margt sem hægt er að bæta."

Það er goslokahátíð í Eyjum um helgina. Alex Freyr var spurður að því hvort hann ætli að fagna henni í kvöld.

„Ég hugsa að flestir geri það. Ég á eftir að tala við konuna bara,"° sagði Alex Freyr laufléttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.