Fotbolti.net
07.07.26 - 00:10
Elvar Geir Magnússon
Steypustöðin

Sterkastur í 13. umferð - Nálgast sitt besta form eftir erfið meiðsli

Aron Elís Þrándarson skoraði tvö mörk í sigri gegn KA.

Aron Elís Þrándarson skoraði tvö mörk í sigri gegn KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Elís Þrándarson leikmaður Víkings er Sterkasti leikmaður 13. umferðar Bestu deildarinnar en hann skoraði tvö mörk í 3-2 endurkomusigri gegn KA. Aron sleit krossband í fyrra og hefur verið að eflast eftir því sem á tímabilið hefur liðið.

„Aron var út um allan völl í dag. Hann vann einvígi á miðjunni og var alltaf mættur inn í boxið. Tvö góð mörk hjá Aroni í dag sem er að nálgast sitt besta," skrifaði Helgi Inguson, fréttamaður Fótbolta.net, í skýrslu sinni um leikinn.

Aron mætti í viðtal við Fótbolta.net eftir leikinn.

„KA menn voru mjög öflugir í dag. Við byrjuðum vel, komumst í 1-0. En svo kemur smá værukærð og við förum að vera of óvandvirkir. Þeir komast inn í þetta, komast 1-2 yfir og það tekur bara smá tíma að koma til baka," sagði Aron.

„Við höfum að talað um að leikurinn fyrir Evrópu hafi alltaf verið eitthvað bras. Hvort menn séu komnir aðeins lengra en þeir eiga að vera, ég veit það ekki. En bara mikilvægt að fá einn svona sigur, þetta hafa verið sigrar sem við siglum heim eftir að vera tveimur til þremur mörkum yfir en við þurftum að sækja þennan."
Sterkasta lið 13. umferðar - Eyjamenn á hörkusiglingu
TENGT EFNI

Sterkasta lið 13. umferðar - Eyjamenn á hörkusiglingu

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 KA
Sterkustu leikmenn:
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Aron þakkar fyrir leikinn.

Aron þakkar fyrir leikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sterkastur í 13. umferð - Nálgast sitt besta form eftir erfið meiðsli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Þrándar: Leikurinn fyrir Evrópu alltaf eitthvað bras

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5Keflavík20-328
6ÍA19-425
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9ÍBV20-1217
10FH19-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.