Amin Cosic til Viking (Staðfest) - Seldur á metupphæð

Amin ásamt umboðsmönnum sínum Ólafi Garðarssyni og Kjartani Henry Finnbogasyni á Viking Stadion sem tekur tæplega 16 þúsund manns í sæti.

Mynd: Aðsend

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin Cosic var rétt í þessu tilkynntur sem nýr leikmaður Viking Stavanger í Noregi. Noregsmeistararnir hafa fylgst með kantmanninum að undanförnu og kom þjálfari liðsins til Íslands fyrr í sumar til að horfa á hann spila.
Fótbolti.net hefur heimilidir fyrir því að kaupverðið sé um 80 milljónir króna og það sé hæsta upphæð sem íslenskt félag hefur fengið fyrir að selja leikmann erlendis.

TENGT EFNI
Amin ræðir skrefið út - „Á bekknum í Njarðvík og hugsaði að þetta væri algjört klúður“
Amin skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við Viking, samningurinn gildir því út árið 2030. Líkt og hjá KR verður Amin í treyju númer 19 hjá Viking.
Amin er fæddur 2005 og er uppalinn hjá HK. Fyrir tímabilið 2024 var hann í leit að mínútum í meistaraflokki og samdi við Njarðvík. Þar vakti hann athygli fyrir öfluga frammistöðu og gekk í raðir KR í sumarglugganum í fyrra.
Amin byrjaði nokkuð hægt í Vesturbænum en styrkti sig í vetur og spilaði mjög vel í vor. Hann lék í mars sinn fyrsta leik fyrir U21 landsliðið þegar hann kom inn á gegn Frakklandi í undankepni EM. Hann vakti athygli erlendra félaga með frammistöðu sinni í vor og það endaði með því að Viking fékk samþykkt kauptilboð í kappann.
Viking er ríkjandi Noregsmeistari og situr á toppi norsku deildarinnar með leik(i) til góða á liðin fyrir neðan sig. Liðið mætir Sarpsborg á útivelli næsta sunnudag og eftir þann leik fær Amin leikheimild með liðinu. Viking fer svo seinni hlutann í ágúst í umspil um sæti í Meistaradeildinni.

Amin með foreldrum sínum Edinu og Almir Cosic.

Mynd: Aðsend