Fotbolti.net
07.09.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Barton bak við lás og slá fram á nýtt ár

Joey Barton bíður réttarhalda.

Joey Barton bíður réttarhalda.

Canon

Mynd: EPA

Joey Barton verður áfram í gæsluvarðhaldi í fangelsi í Liverpool fram á nýtt ár eftir að beiðni um lausn gegn tryggingu var hafnað.

Barton var handtekinn þann 8. mars vegna ásakana um líkamsárás við vinsælan golfklúbb í Liverpool. Búið er að fresta því að málið verður tekið fyrir þar til í mars á næsta ári.

Barton, sem er 44 ára, er ákærður fyrir líkamsárásina sem beindist að fyrrum fótboltaþjálfaranum Kevin Lynch en þeir höfðu verið að drekka saman í golfskálanum

Daily Mail segir að Lynch gæti orðið blindur á öðru auga til lífstíðar eftir árásina.
Barton orðinn fyrirliði í fangelsisliðinu
TENGT EFNI

Barton orðinn fyrirliði í fangelsisliðinu

Barton lék meðal annars fyrir Manchester City, Newcastle og Marseille á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta og spilaði einn A-landsleik fyrir England.

Hann gerðist svo aðalþjálfari hjá Fleetwood Town og Bristol Rovers eftir að hafa lagt skóna á hilluna
Barton bak við lás og slá fram á nýtt ár
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.