Fotbolti.net
06.09.26 - 20:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gylfi: Aldrei verið jafn hamingjusamur eftir þriggja marka tap

Auglýsing
Gylfi Tryggvason.

Gylfi Tryggvason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Mér líður ótrúlega vel. Ég hef aldrei verið jafn hamingjusamur eftir þriggja marka tap," sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, eftir 1-4 tap gegn Val í Bestu deild kvenna.

Það er ljóst að Grindavík/Njarðvík verður í efri hlutanum þegar deildin skiptist en liðið hefði þurft að tapa með tíu marka mun í kvöld svo það yrði ekki að veruleika.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 4 Valur
„Eftir 18 leiki erum við búin að tryggja okkur í efri hlutann og getum með miklu stolti sagt að við séum eitt af sex bestu liðum landsins. Það er tilfinning sem er ótrúlegt að upplifa eftir þessa tíma sem við höfum átt saman og alla þessa vinnu sem hefur farið í þetta verkefni höfum við komið okkur sjálfum á óvart og bara öllum."

Grindavík/Njarðvík er á sínu öðru tímabili eftir sameiningu og er núna á meðal sex bestu liða landsins ásamt því að komast í bikarúrslitaleikinn.

„Við erum komin miklu lengra en mig grunaði þegar ég kom inn í þetta verkefni. Það var engan sem grunaði að við myndum segja árið 2026 að við værum í topp sex og bikarúrslitum. Það er ótrúlega gaman að fá að upplifa þetta. Við erum auðmjúk og þakklát. Þetta hefur ekki verið auðvelt."

Það er stutt í bikarúrslitin þar sem Grindavík/Njarðvík mætir Þrótti á Laugardalsvelli. Gylfi gerði þrefalda breytingu í hálfleik þar sem lykilmönnum var skipt út af. Má segja að þú hafir fórnað þessum leik fyrir bikarúrslitin?

„Nei, ég myndi ekki segja það. Ég myndi ekki taka undir það. Við gáfum nokkrum lykilmönnum hvíld sem hafa fengið litla sem enga hvíld. Við höfum verið að gefa öðrum lykilmönnum hvíld í öðrum leikjum. Það skiptir miklu máli að bera virðingu fyrir deildinni og hverjum einasta leik. Það væri ósanngjarnt gagnvart öðrum liðum í neðri hlutanum ef við hefðum mætt hérna með það markmið að gefa Val þrjú stig. Ég vil alveg að það komi skýrt fram að við vorum ekki að fórna þessum leik, alls ekki. Það er ekki eins og leikmennirnir sem byrjuðu hafi verið að koma okkur í 5-0 og svo höfum við tapað 5-6," sagði Gylfi.

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Grindavík/Njarðvík fagnar marki í sumar.

Grindavík/Njarðvík fagnar marki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi á hliðarlínunni.

Gylfi á hliðarlínunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.