Fotbolti.net
07.09.26 - 10:45
Ívar Björgvinsson

Þegar Romero slapp vegna samúðar Mike Dean

Þegar Romero slapp vegna samúðar Mike Dean
Canon

Mynd: EPA

Mike Dean er sá dómari sem hefur dæmt flesta leiki í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en margir muna eftir því hvernig hann var á fótboltavellinum, þar sem hann var litríkur karakter sem sýndi gjarnan mikla tilburði í dómum sínum, ásamt því að taka reglulega upp á því að sprella í leikmönnunum.
Mike Dean hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga eftir hluti sem hann lét út úr sér falla í hlaðvarpi sem enginn annar en Jamie Vardy stjórnar. Þar fór hann um víðan völl en það sem vakti helst athygli er það hvernig hann lýsti því að hann, ásamt öðrum ónafngreindum dómurum, léku sér að alls konar þrautum á meðan þeir dæmdu leiki í ensku úrvalsdeildinni. Hann tók fram að hann hafi viljandi reynt að standa eins lengi inni í miðjuhringnum og hann kæmist upp með og einnig reynt að komast sem lengst af án þess að flauta í flautu sína.

Því hafa atvik tengd Mike Dean mikið verið í umræðunni síðustu daga en eitt það eftirminnilegasta var þegar hann var VAR dómari í leik Tottenham og Chelsea. Í stöðunni 2-1 fyrir Chelsea á Tottenham hornspyrnu og er spyrnan við það að vera tekin þegar Marc Cucurella fellur niður í teignum.

Þá hafði Cristian Romero rifið í fallegu lokkana á Cucurella, sem var að dekka hann, líklega í einhverju pirringskasti. Mike Deanskoðaði atvikið stuttlega en ákvað ekki að senda Anthony Taylor í skjáinn sem þótti verulega umdeilt.

Hann viðurkenndi mistök sín opinberlega en seinna sagðist hann ekki hafa viljað valda Taylor meiri stressi þar sem hann hafði átt erfiðan leik þar sem bæði lið voru blóðheit. Hann fann til með Taylor þar sem leikurinn hafði tekið á fyrir hann og ákvað því að hlífa honum við auknu stressi. Ákvörðunin var dýrkeypt fyrir Chelsea menn þar sem Tottenham jafnaði leikinn á dramatískan hátt á 96. mínútu.




Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist á áskriftarvef Fótbolta.net en hægt er að smella á fréttina hér að neðan og gerast áskrifandi og lesa hana í fullri lengd.

Öll spjót beinast að Mike Dean - Umdeildustu atvikin tekin saman
TENGT EFNI

Öll spjót beinast að Mike Dean - Umdeildustu atvikin tekin saman

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.